Leoncie fór á kostum á Ránni
Prinsessan úr Sandgerði, hin indverska Leoncie, fór á kostum í lokahófi knattspyrnumanna úr Keflavík sem fram fór á Ránni í Keflavík um helgina. Prinsessan kom og söng nokkur lög af nýjum geisladiski sínum og dansaði um salinn í glitrandi klæðum.Meðfylgjandi mynd tók ljósmyndari Víkurfrétta þegar leikar stóðu hvað hæst. Fleiri myndir í Víkurfréttum á fimmtudaginn. Á meðfylgjandi mynd má sjá þá Kjartan Másson, fyrrum þjálfara Keflavíkur og Árna Sigfússon bæjarstjóra sýna söngkonunni mikinn áhuga, ef marka má svipinn á þeim félögum!