Léku risafótbolta fram á kvöld
Ljósanæturdagskrá Landsbankans hófst í dag við bílastæðin í Kjarna í Reykjanesbæ. Guitar Islancio riðu á vaðið og léku ljúfa tóna og svo fylgdu í kjölfarið Ingó og Veðurguðirnir og síðastir á stokk voru tónlistarmennirnir gamansömu í Baggalút.
Vegleg tónlistarveislan hefur þó líkast til farið fram hjá yngstu kynslóðunum sem skemmtu sér konunglega í risafótbolta og léku krakkarnir langt fram undir kvöld. Það var enginn aukvisabragur á risafótboltanum enda leikmenn úr Landsbankadeildarliði Keflavíkur sem aðstoðuðu krakkana í leik og svo sýndu þeir einstaka sinnum snilli sína.
[email protected]