Mánudagur 13. janúar 2003 kl. 14:11
Leitin að næstu fegurðardrottningu er hafin!

Leitin að Fegurðardrottningu Suðurnesja 2003 er hafin. Lovísa Aðalheiður Guðmundsdóttir, sem hefur umsjón með keppninni, sagði í samtali við Víkurfréttir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort keppnin verði haldin í Stapa eða Bláa lóninu. Hins vegar sé undirbúningur að fara í gang og nú sé leitað eftir þátttakendum í 14-15 stúlkna hóp til að taka þátt í keppninni.Þátttakendur verða allir kynntir á veglegan hátt í Víkurfréttum.
Ábendingum um stúlkur í keppnina má koma til Lovísu Guðmundsdóttur í síma 697 40 30 log 565 8343