Mannlíf

Leikjavinir í Heiðarskóla
Fimmtudagur 18. september 2014 kl. 09:29

Leikjavinir í Heiðarskóla

Nýtt verkefni sem hefur farið vel af stað.

Í þessari viku var farið af stað með verkefni í Heiðarskóla sem kallast Leikjavinir. Það gengur út á að fimm til sex nemendur í 10. bekk stjórna leikjum í frímínútunum sem hefjast kl. 9:30, á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Í hverri viku er um tvo leiki að velja en í þessari viku voru Kötturinn og músin og körfuboltaASNI í boði.

Markmiðin með þessu verkefni eru fyrst og fremst þau að skapa aðstæður þar sem allir áhugasamir geta tekið þátt í skipulögðum leikjum og að skapa stemningu og vonandi hefð fyrir því að nemendur leiki sér saman í skemmtilegum leikjum. Á heimasíðu skólans segir að verkefnið hafi farið virkilega vel af stað þessa fyrstu viku og gaman verði að fylgjast með þróun þess á komandi vikum og mánuðum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024