Leikfélagið setur upp revíu
- kynning og samlestur í kvöld
Kynningarfundur og samlestur fyrir vorverkefni Leikfélags Keflavíkur verður í Frumleikhúsinu við Vesturbraut í Keflavík í kvöld, mánudagskvöldið 7. janúar, kl. 20:00. Sett verður upp revía og verður leikstjórn í höndum Bjarkar Jakobsdóttur.
Allir sem eru 18 ára eða eldri og hafa áhuga á að leika, dansa, syngja eða taka þátt í verkefninu með einhverjum hætti eru hjartanlega velkomnir.