Bygg
Bygg

Mannlíf

Leikfélag NFS sýnir söngleikinn Moulin Rouge
Miðvikudagur 8. apríl 2015 kl. 08:50

Leikfélag NFS sýnir söngleikinn Moulin Rouge

Óðum styttist í frumsýningu Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja à söngleiknum Moulin Rouge í Andrew's Theatre. Hann fjallar um rithöfundinn Kristian sem er ástfanginn af ástinni og kominn á nýjar slóðir þar sem hann ætlar að skrifa um sannleikann, fegurðina, frelsið og það sem hann trúir hvað mest á - ástina. Þó hefur hann aldrei upplifað hana. Ekki líður á löngu þar til hann kynnist leyndardómum Moulin Rouge, næturklúbbi og vændishúsi, þar sem Harold Zidler ræður ríkjum. Kristian verður ástfanginn af Satin, einni af fylgdarmeyjum Zidlers en henni er hins vegar skipað að elska annan og merkari mann.
 
Mikið gengur á í Moulin Rouge, þar er mikill hasar og mikið fjör. Fá Kristian og Satin að vera saman? Eða gerist eitthvað annað sem engan hefði órað fyrir?
 
Syningar verða eftirtaldar:
17 apr. fös Kl. 20:00 18 apr. lau Kl. 16:00 19 apr. sun Kl. 20:00
22 apr. mið Kl. 20:00 23 apr. fim Kl. 20:00 24 apr. fös Kl. 20:00
25 apr. lau Kl. 20:00
 
Miðasala á miði.is. 
Bílakjarninn
Bílakjarninn