Leikfélag Keflavíkur setur upp revíu
Leikfélag Keflavíkur er þessa dagana á fullu að æfa revíu undir leikstjórn Helgu Bragadóttur. Sýningar hefjast í mars og má búast við miklum hlátri í áhorfendum enda þekktir bæjarbúar teknir fyrir.
Leikararnir mættu á bæjarstjórnarfund í vikunni til að kynna sér takta bæjarfulltrúa en þeir eru helsta skotmarkið þegar kemur að bæjargríni. Einnig má sjá kunnug andlit eins og Kjartan Másson og Grétar Mar Jónsson. Nýjasta æðið í bænum er svo tekið fyrir en það verður ekki nefnt því ekki má gefa of mikið upp.
Ljósmyndir: Siggi Jóns