Leikbrúðusýning og fleira á menningardögum
Bókasafn Reykjanesbæjar stendur fyrir fyrirlestri um sögu Keflavíkur, leikbrúðusýningu og ljósmyndamaraþoni fyrir 9. bekkinga, í tengslum við M-2000.Guðleifur Sigurjónsson, safnvörður Byggðasafnsins, fræðir áhugasama um sögu Keflavíkur fimmtudagskvöldið 4. maí en nánar er sagt frá því annars staðar í VF í dag. Næstkomandi laugardag, þann 6. maí, kl. 10 gefst nemendum 9. bekkja í Reykjanesbæ, kostur á að taka þátt í æsispennandi ljósmyndamaraþoni, en það er haldið í samstarfi við Félagsmiðstöðina Fjörheima. Þátttakendur eiga að mæta stundvíslega á bókasafnið þar sem þeir fá filmur og myndefni afhent, en verða sjálfir að koma með myndavélar. Filmunni á að skila aftur kl.16 sama dag, ásamt upplýsingum um í hvaða röð myndirnar voru teknar. Þátttökugjald er 500 kr. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir bestu filmuna, frumlegustu myndina og bestu útfærsluna.Helga Arnalds, leikbrúðumeistari, verður ásamt spýtustráknum Gosa á bókasafninu á laugardaginn. Helga segir söguna um Gosa og sýnir um leið brúðuleik, þar sem sjálfur Gosi er í aðalhlutverki. Helga notar einnig grímur og skuggaleikhús til að draga söguna fram. Ungir og aldnir hafa án efa gaman af að heimsækja Gosa á bókasafnið en sýningin hefst kl. 14 og eru allir velkomnir.