Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

Leiðist ekkert að leiðast
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
sunnudaginn 19. apríl 2020 kl. 13:49

Leiðist ekkert að leiðast

Sigurborg Magnúsdóttir, kennari í Heiðarskóla, hefur notið samveru stórfjölskyldunnar og er nýbúin að kaupa miða á Þjóðhátíð fyrir hana. Víkurfréttir lögðu nokkrar laufléttar spurningar fyrir Sigurborgu.

– Hvernig hefur þú verið að verja páskunum?

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Ég er svo heppin að mér leiðist ekkert að leiðast, mér finnst auðvelt að hlýða Víði. Við stórfjölskyldan höfum notið þess að vera heima í páskafríinu. Við höfum stundað Metabolic-æfingar og nýtt okkur vel æfingar frá Helga. Við höfum spilað, legið í sófanum og horft á sjónvarp, dansað við Helga Björns, farið í göngutúra og ýmislegt fleira. Ég byrjaði líka á bókinni hans Andra „Um tímann og vatnið“ og hlakka til að halda áfram með hana. Það allra besta við páskafríið 2020 er klárlega samveran heima með Gunna og börnunum okkar.

– Hvernig páskaegg fékkstu og hver var málshátturinn?

Klassískt Nóa & Sirius nr. 4. „Betri er beiskur sannleiki en blíðmál lygi.“

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

Aðallega símtöl og Zoom.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

Hópsímtal á systkini mín því mér þykir svo óendanlega vænt um þau.

– Hvernig ertu að upplifa nýjustu tíðindi um að það muni jafnvel margar vikur inn í sumarið að aflétta hömlum vegna COVID-19?

Eins og málshátturinn minn segir þá er betra að fá að heyra þetta strax og undirbúa sig. Er samt nýbúin að kaupa miða á þjóðhátíð í Eyjum fyrir alla fjölskylduna.

– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

Hraðinn og spennan í tilverunni þarf að minnka og í stað þess að þjóta út um allt getum við unnið meira og betur saman. Ég vona að manneskjan átti sig á að við verðum að slaka á í græðgi því ég trúi því að hún sé mögulega rótin að þessu. Munum svo að lífið er alltaf akkúrat núna, dagurinn í dag kemur ekki aftur svo njótum hans eins vel og við getum.

– Ertu liðtæk í eldhúsinu?

Já, við Gunni höfum bæði mjög gaman af því að elda sem er mjög hentugt á stóru heimili.

– Hvað finnst þér virkilega gott að borða?

Nautasteik með góðu meðlæti.

– Hvað var í páskamatinn?

Lambahryggur með steiktum gulrótum, aspas og sveppum. Litlar pavlovur með skyrfyllingu í eftirrétt.

– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

Fastur liður á föstudögum eru heimagerðar pizzur. Ég geri botnana og svo gerir hver og einn sína pizzu og skellir í pizzaofninn góða. Þetta er skemmtileg hefð, bestu pizzur í heimi og frábær samvera.

– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?

Möndlukaka sem sló rækilega í gegn!

– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað myndir þú kaupa í matinn?

Ekki auðvelt fyrir átta manna fjölskyldu en mögulegt að redda þessu með því að kaupa í uppáhaldspastarétt fjölskyldunnar, Pasta Arrabiata, sem er mjög góður og fljótlegur réttur.

– Hvað hefur gott gerst í vikunni?

Við höfum fengið að finna fyrir vorinu og vaknað við fuglasöng.

– Hvað hefur vont gerst í vikunni?

Án nokkurs vafa er það fráfall Ingu systur minnar.

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni?

– Áttu rafmagnsbíl?

En gaman að þú skildir spyrja að þessu því við erum einmitt nýbúin að kaupa okkur rafmagnsbíl! Það er æðisleg tifinning að fara út að aka á honum.


MARGT FLEIRA Í FJÖLBREYTTUM 76 BLS. VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25