Leiðin á heimsleikana í heimildamynd
Heimsleikar lögreglu- og slökkviliðsmanna fara fram í New York dagana 26. ágúst til 5. september næstkomandi. Þetta er vettvangur eins af stærstu íþróttaviðburðum heims sem líkja má við sjálfa ólympíuleikana.
Móthaldarar búast við allt að 20.000 lögreglu- og slökkviliðsmönnum frá yfir 70 löndum víðs vegar úr heiminum. Leikarnir eru haldnir á tveggja ára fresti en í ár verða þeir sérstakir fyrir þær sakir að nú eru 10 frá árásunum á tvíburaturnana í New York þar sem leikarnir eru haldnir.
Eins og oft áður munu slökkviliðsmenn héðan af Suðurnesjunum senda fulltrúa á leikana en þeir hafa farið reglulega síðan 1999 og staðið sig með sóma. 60 fulltrúar koma frá Íslandi að þessu sinni og þar af 20 frá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli og munu þeir keppa í hinum ýmsu greinum s.s. knattspyrnu, körfubolta, lyfingum og ultimate firefighter sem sameinar alla helstu þætti slökkvistarfsins í eins konar fitness útfærslu.
Einar Már Jóhannesson er einn af slökkviliðsmönnunum frá Isavia sem tekur þátt í leikunum. Hann fékk þá hugmynd að skjalfesta þessa merku ferð og í vinnslu er heimildamynd um undirbúning fyrir ferðina og ævintýrið sjálft í stóra eplinu.
„Við Oddur Jónasson, vinur minn og starfsfélagi, vorum að velta því fyrir okkur að gaman væri að skjalfesta þetta ferðalag þar sem við höfðum heyrt svo skemmtilega hluti um leikana frá hinum strákunum og við erum að fara í okkar fyrsta skipti og hugmyndin var upphaflega að kaupa okkur jafnvel góða upptökuvél sem væri með í ferðinni.
Svo fórum við að hugsa að við nenntum ekki að standa í þessu öllu sjálfir og okkur fannst við vera með skemmtilegt efni í höndunum og að fólk gæti hugsanlega haft gaman af að fylgjast með þessum svakalega viðburði. Þetta vatt svo bara svona upp á sig og við fórum að gerast djarfari í þessum hugmyndum og að lokum vorum við mættir inn á teppi hjá Skjá einum, sáum fyrir okkur átta tuttugu mínútna þætti með smá gamansömu ívafi. Við vissum bara ekki betur, þetta er ekki svona einfalt og við vorum bara settir á okkar stað þarna á skrifstofunni hjá Skjá einum. Þeim leist hins vegar mjög vel á hugmyndina og sögðu þetta vera flott efni í tvo klukkutíma þætti þar sem fjallað væri um undirbúning ferðarinnar í öðrum og leikana sjálfa og ferðalagið í þeim seinni. Við fengum því næst fagmennina Garðar Örn Arnarson og Erling Jack Guðmundsson til liðs við okkur og allt fór á fullt.“
„Ég kom að þessu verkefni þannig að ég þekkti bæði til Einars Más og Odds og þeir vissu að ég væri í kvikmyndanámi. Þeir höfðu samband við mig og spurðu hvort ég hefði ekki áhuga á þessu. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um heldur sló bara strax til enda alltaf verið mikill slökkviliðsáhugamaður og er gríðarlega hrifinn af þessari tegund kvikmynda, þ.e.a.s. heimildamyndum. Eftir það hafði ég strax samband við góðvin minn og skólafélaga Erling og bauð honum að taka þátt í þessu með mér og þannig fór þetta að rúlla,“ segir Keflvíkingurinn Garðar Örn.
Garðar segist líta á þetta sem virkilega stórt tækifæri fyrir sig sem kvikmyndagerðarmann og besta kennsla sem maður fái í þessum bransa er einmitt þetta að vera í tökum. „Það er bara eins og í öllu öðru þú safnar engri reynslu og þróast ekki bara á því að lesa bækur og fylgjast með kennaranum, maður þarf að vera úti á velli og gera það rétta og það ranga til þess að læra og þróast. Ég tel að þetta verkefni sé mjög góður stökkpallur fyrir mig persónulega sem kvikmyndagerðarmann,“ segir Garðar.
Garðar segir áhorfendur mega eiga von á frábærri skemmtun fyrir bæði karla og konur á öllum aldri. „Við skyggnumst örlítið inn í líf slökkviliðsmannsins og daglega rútínu hjá þeim. Svo fylgjum við þeim í öllu því sem þeir munu aðhafast þarna úti, við munum verða eins og skugginn á þeim í New York og þeim verður ekkert hlíft, það verður allt filmað. Þannig að fólk verður bara að bíða spennt eftir að fá að sjá þetta, og það er ekki ólíklegt að lögð verði stjörnuhella fyrir utan félagsbíó í Keflavík á Ljósanótt 2012.