HSS
HSS

Mannlíf

Langar þig til skapa list eða hitta annað fólk sem er í listsköpun?
Fimmtudagur 11. febrúar 2010 kl. 16:30

Langar þig til skapa list eða hitta annað fólk sem er í listsköpun?

Opið hús á Listatorgi 13. febrúar

Laugardaginn 13.febrúar frá klukkan 13:00 til 17:00 verða opnar vinnustofur í Nýrri Vídd þar sem hægt verður að hitta félagsmenn í Listatorgi, sem munu leiðbeina gestum og gangandi með sýnikennslu í leirkeragerð, myndlist, glerlist, skartgripagerð, prjónagerð, kertagerð. Þau munu einnig fræða fólk um aðstöðuna í Listatorgi og jafnframt hverjir geta fengið þar aðstöðu til listsköpunar en félagið er öllum opið sem vilja vera með.

Púlsinn námskeið er einnig staðsett á Listatorgi og verður þennan laugardag með prufutíma klukkan 15:00 í jógaleikfimi fyrir þá sem vilja prófa einn tíma án endurgjalds.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veitingahúsið Vitinn verður með nýbakaðar vöfflur, þeyttan rjóma og heitt kakó um kaffileytið gegn sanngjörnu verði.

Gallerí Listatorg er með úrval gjafavöru þennan dag sem endranær. Komdu og gerðu frábær kaup á handverki td. í fermingargjöf. Fólk hefur gert sér ferð úr höfuðborginni til þess að gera betri kaup í Gallerí handverksfólks í Listatorgi, vegna mun ódýrari verðlagningar á handverki hérna.

Í sýningarsalnum eru Anna Ósk og Gunnar Gestur með stórglæsilega ljósmyndasýningu.

Skemmtilegur dagur fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 13.febrúar. Taktu daginn frá!