Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Langar að leika vonda kallinn
Albert Halldórsson.
Laugardagur 14. júní 2014 kl. 09:00

Langar að leika vonda kallinn

Stundar stöðuga sjálfsrannsókn í námi sínu.

Frekar sjaldgæft er að Suðurnesjafólk stundi nám við Leiklistarskóla Íslands. Keflvíkingurinn Albert Halldórsson var meðal 170 umsækjenda þegar hann var valinn í 10 manna hópinn sem kemst inn ár hvert. Hann segir okkur frá því hvernig áskoranir í náminu hafa breytt lífi hans.

„Maður kynnist mikið sjálfum sér í náminu því maður er í stöðugri sjálfsrannsókn. Stundum er það skemmtilegt og stundum erfitt. Ég þekki sjálfan mig betur og veit einhvern veginn meira hvað ég vil í lífinu en áður en ég byrjaði í þessu námi,“ segir Albert sem er á öðru ári í skólanum af þremur. Fyrsta árið var að hans mati erfiðara en annað árið. „Við fórum beint út í djúpu á fyrsta ári. Það tókst ágætlega þótt það væri erfitt. Þá lærum við grunnatriði sem kafað er dýpra ofan í á öðru ári.“ Í náminu sjái kennarar um vissa þætti eins og leiktúlkun og hreyfingu og síðan er ráðið inn fólk sem hafi einhver sérsvið. „Leiktúlkunarkennarinn er Stefán Jónsson og ég er mjög ánægður með hann. Ég hef lært mjög margt af honum.“ Einnig læri þau raddbeitingu og sönglist.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ásamt samnemendum í trúðakúrsi hjá Rafael.

Trúður ekki bara fyndinn
Hluti af leiklistarnáminu er að læra að „fæða“ trúða og leika sér með þá. Það er námskeið sem leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir byrjaði með en maður sem heitir Rafael vinnur svo meira með trúðinn með nemendum. „Trúður getur verið svo miklu meira en fyndinn. Hann er mjög einlæg persóna. Hann er mannsbarnið, krakkinn innra með manni, sem fær að brjótast út og skína,“ segir Albert og lýsir sínum trúði sem rosalega æstum og tilbúnum í allt. „Hann er í raun mitt alter ego, allt öðruvísi en ég. Um leið og ég set nefið á mig og anda að mér efnunum sem eru í nefinu, sílikon og málningu, þá kveikir það í Unga, ofvirka trúðnum. Hann öskrar dálítið mikið og ég er að reyna að ala upp fleiri litbrigði í honum. Það verður að vera gaman að horfa á hann,“ segir Albert og brosir.

„Ég var algjört slys“
Draumurinn um að verða leikari kviknaði hjá Alberti þegar hann var ungur drengur. Þá fannst honum mest heillandi við starfið að segja sögur og vera í búningum. „Síðan hef ég stundum hætt við það og langað t.d. að verða flugmaður eða arkitekt. En hvarf svo alltaf til baka í leiklistardrauminn. Bróðir minn, Hafsteinn Gíslason, lék lengi með Leikfélagi Keflavíkur. Hann var mjög góður og smitaði mig af þessari bakteríu,“ segir Albert og bætir við að hann hafi aldrei verið beint athyglissjúkur, heldur frekar feiminn. Hann er uppalinn í Keflavík. „Mér fannst fínt að búa fyrir sunnan. Þetta er mikill íþróttabær eins og víða á landinu. Ég var ekki góður í körfubolta, fótbolta, boxi, badminton og golfi. Prófaði þetta allt. Fannst reyndar gaman í boxi en þegar ég átti að fara í hringinn og berja einhvern þá hætti ég,“ segir Albert brosandi. Hann fann sig betur í leiklistinni og lék í barnaleikritum, försum og revíum með Leikfélagi Keflavíkur. Tólf ára lék hann t.a.m. í Oliver Twist. Albert er langyngstur sex systkina. „Mamma var 42 ára og pabbi 45 þegar ég fæddist. Það var búið að taka mömmu úr sambandi. Ég var algjört slys,“ segir hann og hlær.

Vill kafa djúpt
Þegar Albert flutti svo til Reykjavíkur fyrir 3-4 árum hóf hann nám í ritlist en fór á fullt í Stúdentaleikhúsið. „Þar kynntist ég öðru formi af leiklist þar sem við áttum að semja allt sjálf; leikur, söngur og dans var allt í einum graut og búin til sýning. Þessi nýjung kveikti enn meiri áhuga hjá mér á leiklist. Eftir að ég fór í námið verð ég ávallt meira meðvitaður um hvenær ég er feiminn og hvenær ekki. Þá læri ég hvað ég get gert til að vinna með feimnina.“ Í dag segir Albert að sér finnist mest heillandi að kafa djúpt í hlutverk og manneskju sem hann leikur hverju sinni. „Ég vil vita hvers vegna fólk hegðar sér eins og það gerir, hvernig það ber sig miðað við hvað það hefur gengið í gegnum. Svo hef ég líka mjög gaman af sögum og ímynda mér sögur að baki persónunum sem ég leik.“

„Enginn fæðist vondur“
Spurður um draumahlutverk segir Albert að honum finnist „vondi kallinn“ mjög spennandi. „Það er gaman að rannsaka svona vonda menn. Hvað gerir þá vonda, hvað gerðist, því enginn fæðist vondur.“ Ein af fyrirmyndum Alberts í slíkum hlutverkum er bandaríski leikarinn Daniel Day Lewis. „Hann hefur leikið nokkra semi-siðblinda menn. Sumir sem leika vonda menn lifa sig svo mikið inn í hlutverkið að þeir eru í því heima hjá sér. Það kallast method-leikari. Heath Ledger var þannig leikari, enda var hann virkilega góður sem jókerinn í Batman. En við vitum hvernig það fór,“ segir Albert og leggur áherslu á að nauðsynlegt sé að læra að aðskilja sig frá hlutverki því annars getur það verið hættulegt. „Við tölum um það í náminu og lærum aðferðir til þess að við þurfum ekki að festast í hlutverkunum. Við vinnum með kerfi þar sem við ímyndum okkur að t.d. hausinn á okkur sé gerður úr steini eða að hann fljóti yfir búknum. Og stór munur er á hvort maður ímyndar sér að sól skíni frá hjartanu eða að þar sé steinn. Einnig er hægt að búa til persónur með svona tækni. Leikarinn Þorsteinn Bachmann notar t.d. þessa tækni mikið og hann var virkilega góður í Vonarstræti.“

Sem Claudio í Líku líkt í Shakespeare kúrsi.

Málmhaus og Laddaleikur
Albert segist vera til í að vinna með nokkrum íslenskum leikstjórum sem séu að gera góða og áhugaverða hluti. Sjálfur lék hann fyrir ári í myndinni Málmhaus sem Ragnar Bragason leikstýrði. „Þar er ég í þremur senum með þrjár til fjórar línur. Ég væri alveg til í að leika stærra hlutverk í mynd á hans vegum. Hann var dómari í inntökuprófunum í skólann og spurði hvort ég væri til í að leika hlutverk í myndinni hans. Það var mjög skemmtilegt að prófa það.“ Einnig hefur Albert talsett nokkur hlutverk í teiknimyndum og bíómyndum eins og Lego Movie og Frozen. „Núna er ég að talsetja 70 þátta seríu þar sem ég er nokkrir stórir karakterar. Þarf að breyta röddinni oft og fara í Laddaleik,“ segir hann hlæjandi. Hann hvetur jafnframt alla sem hafa áhuga á að fara í Leiklistarskólann að sækja um og vera þá vel undirbúnir fyrir prufurnar. Vera tilbúin fyrir allt.

VF-Olga Björt

Svarthvít mynd af Alberti og kærustu hans, Sölku: Arnar Bergmann.