Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Landslið skemmtikrafta á 20 ára afmæli Sjóarans síkáta í Grindavík
  • Landslið skemmtikrafta á 20 ára afmæli Sjóarans síkáta í Grindavík
Föstudagur 13. maí 2016 kl. 12:18

Landslið skemmtikrafta á 20 ára afmæli Sjóarans síkáta í Grindavík

Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík fagnar 20 ára afmæli í ár og því verður öllu til tjaldað að gera hátíðina sem glæsilegasta í ár en hún fer fram dagana 3.-5. júní nk.

Á meðal þeirra sem búið er að bóka á Sjóarann síkáta er Páll Óskar sem kemur fram bæði á Bryggjuballi og verður með Palla-ball í íþróttahúsinu. Bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir munu skemmta saman ásamt hljómsveit. Heimamaðurinn Ellert Heiðar Jóhannsson sem sló í gegn í The Voice treður upp ásamt hljómsveit sinni og Ingó Veðurguð sér um brekkusöng. Þá mun hópur tónlistarfólks í Grindavík standa fyrir klassískri rokkhátíð, svo eitthvað sé nefnt. Barnadagskráin verður í öndvegi en búið er ráða m.a. Villa og Góa, Gunna og Felix, Einar Mikael, íþróttaálfinn, Sollu stirðu, Sigga sæta, Gogga Mega, Sirkus Ísland, Pílu pínu, brúðubílinn o.fl.

Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins haldin um Sjómannadagshelgina  til heiðurs íslenska sjómanninum og fjölskyldu hans. Hátíðin fagnar 20 ára afmæli í ár og þá fagnar Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur 60 ára afmæli í ár. Því verður hátíðin í ár glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að skipulagningu og gæslu á hátíðinni með öflugum hætti að vanda. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Um 25 þúsund gestir voru á hátíðinni í fyrra.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024