Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Mannlíf

  • Landskeppni í lestri að hefjast
  • Landskeppni í lestri að hefjast
Þriðjudagur 14. október 2014 kl. 11:09

Landskeppni í lestri að hefjast

Allir lesa er landskeppni í lestri sem hefst á morgun. Starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar tekur að sjálfsögðu þátt í keppninni og hvetur bæjarbúa til að gera slíkt hið saman. Við viljum ekki síður vekja athygli á lesti í samfélagsmiðlum og hvetjum því alla til að merkja skemmtilegar lestrarmyndir með merkjunum #allirlesa og #bokasafnreykjanesbaejar á Instagram og Facebook. Ef þið viljið eiga möguleika á því að myndin birtist í Víkurfréttum, munið þá eftir  #vikurfrettir. Bókasafnið veitir verðlaun fyrir skemmtilegustu lestrarmyndina.

Allir lesa gengur út að þátttakendur skrái þá titla sem þeir lesa og þann tíma sem þeir verja í lestur í lestrardagbók á vefnum allirlesa.is. Allar tegundir bóka eru gjaldgengar í keppnina, líka raf- og hljóðbækur. Keppnin er liðakeppni og tilvalið er að skrá fjölskylduna, vinahópinn eða vinnustaðinn til keppni. Skráning liða er hafin og verður lestrardagbókin opin á vefnum eftir að keppni lýkur þann 16. nóvember, á Degi íslenskrar tungu.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25