Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Miðvikudagur 24. apríl 2002 kl. 17:38

Landbúnaðarráðherra í Reykjanesbæ á morgun

Framsóknarflokkurinn í Reykjnesbæ fagnar sumrinu með því að bjóða öllum bæjarbúum í veislu á Sumardaginn fyrsta. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur boðað komu sína á hátíðina.Veislan fer fram í Félagsheimili Framsóknarflokksins að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ. Veislan hefst kl. 13.00 en í boði verður m.a. kaffihlaðborð og með því fyrir fullorðna. Börnin fá græna frostpinna, grillaðar pylsur og gos.
Fjöldi skemmtiatriða verða í boði, Rúnar Júlíusson mætir og tekur lagið, eldgleypir mættir og sýnir listir sínar og margt margt fleira.
Kveðja
Kosningastjórn Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024