Mánudagur 20. maí 2002 kl. 18:37
Landbúnaðarráðherra fór á hestbak á Mánagrund

Landbúnaðarráðherrann Guðni Ágústsson skellti sér á hestbak á Mánagrund í dag þegar hann var ásamt frambjóðendum Framsóknarflokksins að kynna stefnuskrá flokksins fyrir hestamönnum í Reykjanesbæ. Guðni er mikill hestamaður og var ekki lengi að skella sér á bak og ríða einn reiðtúr í kringum félagssvæði Mánagrundar í dag og bar ekki á öðru en að Guðna líkaði hestamennskan í góðvirðinu í dag.Meðfylgjandi myndir voru teknar af landbúnaðarráðherranum í dag.