Laðar til sín listafólk frá öllum heimshornum
Ferskir vindar haldnir í sjötta sinn í Garði
Þegar ekið er í gegnum Garðinn núna má sjá listafólk á vappi um bæinn en þegar komið er inn í samkomuhúsið sést greinilega að húsið hefur breyst í alþjóðlega listasmiðju.
Listakonan Mireya Samper, systir Baltasars Kormáks leikstjóra, er skipuleggjandi og hugmyndakonan á bak við listahátíðina Ferskir vindar, sem haldin er annað hvert ár í Garði, Suðurnesjabæ.
Að þessu sinni eru listamenn frá átján löndum sem taka þátt en hróður hátíðarinnar hefur borist víða og komast færri að en vilja, aðallega vegna húsnæðisleysis, segir Mireya en blaðakona Víkurfrétta kíkti í samkomuhúsið í Garði til að fá fréttir af komandi listsýningu sem hefst 4. janúar á nýju ári.
Einstök listahátíð á heimsmælikvarða
„Ég hafði ferðast víða um heim og tekið þátt í samskonar listahátíðum erlendis áður en ég ákvað að búa til þessa hátíð í samstarfi við bæjaryfirvöld í Garði á sínum tíma. Þetta er í sjötta sinn sem Ferskir vindar fara fram en hátíðin er haldin annað hvert ár. Hátíðin sem ég hef staðið fyrir tengir saman allar listgreinar en það er ekki algengt erlendis. Við höfum fengið tónlistarfólk, myndlistarfólk, dansara, söngvara og gjörninga og fleiri listgreinar. Það fer mjög gott orð af hátíðinni erlendis og eftirspurnin er gífurleg, það er þegar orðið fullt á næstu hátíð og ég er meira að segja byrjuð að skrá niður þátttakendur fyrir þarnæstu hátíð. Við erum að fá listafólk í mjög háum gæðaflokki. Listamenn koma hingað og dvelja við listsköpun sína í einn mánuð. Þetta gefur listafólkinu nægan tíma til listsköpunar og einnig mikinn innblástur, að hitta aðra listamenn. Eitthvað nýtt verður til úr þessum samruna. Við getum alveg sagt að það sé brjáluð aðsókn en það er vegna þess að Ferskir vindar er ólík öllum öðrum listahátíðum erlendis. Nú eru 45 listamenn að taka þátt og við hefðum getað boðið fleirum en húsnæðisskortur hamlaði því. Við viljum helst hafa listafólkið búsett innan Garðs því allir eru fótgangandi og því best að þátttakendur, hópurinn, búi nálægt hver öðrum. Íslendingarnir sem taka þátt fara samt yfirleitt heim til sín eftir vinnudag listsköpunar. Samkomuhúsið er miðjupunkturinn en þar borðum við og fögnuðum jólum og áramótum saman,“ segir Mireya Samper.
Hvers vegna þessi gífurlegi áhugi listamanna?
„Það er landið okkar Ísland sem laðar til sín, bæjarfélagið og staðsetningin heillar þau, vindarnir, veðrið, víðáttan, náttúruöflin, sjórinn, þetta litla vingjarnlega samfélag en listafólkið býr margt í stórborgum erlendis. Gott orðspor hefur farið víða um heim og hátíðin hefur skipað sér sess sem mjög áhugaverð alþjóðleg listahátíð. Nú hefur bæjarfélagið sameinast Sandgerði og heitir Suðurnesjabær, við stækkum einnig að því leyti að sýningarstaðir eru einnig í Sandgerði, í Listatorgi, Vörðunni og Sandgerðiskirkju. Listamenn munu skilja eftir sig verk í báðum hverfum bæjarfélagsins að þessu sinni,“ segir Mireya.
Góð vinátta og jafnvel hjónabönd
„Jú, jú, það hafa orðið til mörg pör eftir Ferska vinda. Fólk kynnist vel á þessum mánuði og góð vinátta myndast eða jafnvel ástarsamband. Það hafa orðið til tvö brúðkaup og eitt barn hefur fæðst hjá öðru parinu,“ segir Mireya Samper að lokum þegar blaðakona spyr út í tengslin sem hafa myndast í hópunum.
Mireya býður alla hjartanlega velkomna á sýningarhelgarnar sem eru tvær, sú fyrri er 4. og 5. janúar og sú seinni er 11. og 12. janúar og rútuferð. Hátíðinni lýkur með stórri brennu á listaverki eins þátttakanda úti við Garðskagavita þann 12. janúar um klukkan 18:30.
Dagskrá í heild sinni sést á heimasíðu hátíðarinnar fresh-winds.com