Kynntu starf hársnyrtisdeildar FS
Opið hús var í hársnyrtideild FS í gær, þriðjudag, en sérstakt boðsbréf hafði verið sent út til allra hárgreiðslustofa á Suðurnesjum.
Gestirnir fengu að sjá nemendur að störfum og gátu kynnt sér starfið hjá deildinni, en hún flutti um set innan skólahússins ekki alls fyrir löngu. Eins var markmiðið með þessari uppákomu að tengja námið betur við atvinnulífið og gefa nemendum tækifæri á að kynnast starfandi hársnyrtum þar sem þau eiga eftir að sækja um námssamning innan tíðar.
Nokkuð góð mæting var í skólann og sagði Svava Jóhannesdóttir, deildarstjóri hársnyrtideildar, að gestirnir hafi haft gaman að því að kynna sér starfið og vildi þakka þeim öllum fyrir komuna.
Myndir: VF-mynd/Þorgils og www.fss.is