Kynnti nýja barnabók og tók lagið
Rithöfundar eru á ferð og flugi um landið þessa dagana að kynna bækur sínar. Einn af þeim sem er að gefa út bók nú fyrir jólin er Keflvíkingurinn Þröstur Jóhannesson. Þröstur býr nú á Ísafirði og hefur búið þar síðustu ár. Hann mætti í sinn gamla heimabæ síðasta fimmtudag til að kynna nýju bókina sína á Bókasafni Reykjanesbæjar. Bókin heitir Bjalla og bæjarstjórinn sem gat ekki flogið og er barnabók.
Þetta er önnur bók Þrastar en áður gaf hann út bókina Sagan af Jóa árið 2013. Þröstur er einnig tónlistarmaður og hefur verið í nokkrum hljómsveitum í gegnum tíðina og má þar nefna Ofris, Vonlausa tríóið, Texas Jesús, Hinir Guðdómlegu Neanderdalsmenn og Unaðsdalur ásamt því að eiga sólóferil. Eins og áður sagði mætti hann á Bókasafn Reykjanesbæjar og var að sjálfsögðu með gítarinn meðferðis. Hann tók eitt lag í byrjun og las síðan upp úr nýju bókinni sinni.