Kynning á menningu og ferðaþjónustu 2009 í Grindavík
Laugardaginn 28. febrúar verður kynning á menningu og ferðaþjónustu 2009 í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a, Grindavík, frá kl. 13.00 til 17.00.
Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur 2009, Kristinn Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi kynnir viðburðamikla dagskrá ársins 2009.
AF STAÐ á Reykjanesið, þjóðleiðagöngur, gönguhátíð og göngubæklingar, Sigrún Jónsd. Franklín verkefnastjóri kynnir gönguverkefni á Reykjanesskaga.
Saltfisksetrið, Óskar Sævarsson forstöðumaður kynnir starfsemi Saltfisksetursins.
Grindavík Experience, ýmiss fyrirtæki í ferðaþjónustu kynna starfsemi sína.
Markaðsstofa á Suðurnesjum, Kristján Pálsson formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja kynnir starfsemi Markaðsstofu.
Strandmenning, Magnús Sigurðsson kynnir verkefni Vita- og Strandmenningarfélags Íslands.
Reykjanesfólkvangur, kynnt verður nýútkomin skýrsla um ferðamöguleika í fólkvangnum.
Matur á heimaslóð, kynning á mat og veitingastöðum.
Kynningunni er ætlað að gefa innsýn í menningu og ferðaþjónustu og jafnframt efla samstarf.
Matarsmakk, ferðavinningar og allir velkomnir.