Kynning á flugmódelsportinu í Reykjanesbæ
Flugmódelfélag Suðurnesja stendur fyrir kynningu á flugmódelsportinu sunnudaginn 29.ágúst nk. frá kl.10-12 á flugvelli félagsins í Grófinni (Keflavík) ef veður leyfir. Kynning þessi er styrkt af Menningar- Íþrótta- og Tómstundaráði Reykjanesbæjar(MÍT). Bæjarbúar eru hvattir til þess að koma og fá að meðhöndla flugmódel með aðstoð leiðbeinanda.Stjórn Flugmódelfélags Suðurnesja








