Kvöldskemmtun hátíðarinnar við Gerðaskóla
Sólseturshátíðin í Garði fór fram nú um helgina en kvöldskemmtun hátíðarinnar var í ár haldin við Gerðaskóla. Undanfarin ár hefur hún verið á Garðskaga en í ár var ákveðið að breyta til.
Ýmsir listamenn, bæði af Suðurnesjunum og annars staðar, komu fram á kvöldskemmtuninni og gestir nutu tónlistarinnar í veðurblíðunni og sólguðu í sig sælgæti og súpu.
Sólborg Guðbrandsdóttir smellti af meðfylgjandi myndum síðastliðið föstudagskvöld í Garði.