Kvöldið er fagurt!
Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 10. apríl og fimmtudaginn 13. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Kórinn heldur aðra tónleika í sal Karlakórs Reykjavíkur laugardaginn 15. apríl sem hefjast kl. 17.00. Efnisskráin samanstendur af íslenskum og erlendum lögum. Stjórnandi er Agota Joó, Vilberg Viggósson leikur undir á píanó, Þórólfur Þórsson á bassa og Gestur K. Pálmason á slagverk. Einsöngvarar á tónleikunum verða Laufey H. Geirsdóttir, Guðrún Egilsdóttir, Birna Rúnarsdóttir og Sigrún Ósk Ingadóttir.