Kvöddu Margréti á Hæfingarstöðinni
- Lét af störfum í gær sem matráður.
Margrét Pétursdóttir lét af störfum í gær sem matráður á Hæfingarstöðinni. Árni Sigfússon bæjarstjóri þakkaði Margréti fyrir vel unnin störf og þá umhyggju og virðingu sem hafa einkennt störf hennar í þjónustu við fatlað fólk í Reykjanesbæ. Samstarfsfólk og þjónustunotendur þökkuðu Margréti einnig samstarfið og buðu svo í veislu að þeirra hætti.