Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar TK í kvöld
Kvikmyndatónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir í Stapa, Hljómahöllinni, síðdegis í dag, miðvikudaginn 16. mars kl. 18.00. Á tónleikunum koma fram yngsta, mið og elsta lúðrasveit skólans.
Það kennir ýmissa grasa í efnisskrá tónleikanna, en þó einkennast þeir af kvikmyndatónlist sem er þema tónleikanna. Jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi myndum. Sem dæmi, þá verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Star Wars, Toy Story og Mamma Mia og úr sjónvarpsþáttunum Game Of Thrones.
Stjórnendur lúðrasveitanna eru Harpa Jóhannsdóttir, Þorvaldur Halldórsson og Sandra Rún Jónsdóttir.
Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti.