Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Kventett með tónleika í dag
Sunnudagur 14. mars 2004 kl. 12:25

Kventett með tónleika í dag

Málmblásarakvintettinn Kventett heldur tónleika í DUUS-húsum í dag klukkan 16. Kventett er fyrsti íslenski kvenmálmblásarakvintettinn og hefur starfað frá árinu 1997. 
Kventettinn hefur leikið víða við ýmiss tækifæri á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og víðar,  komið fram í útvarpi, sjónvarpi og haldið sjálfstæða tónleika m.a. í Norræna húsinu á vegum Háskólans og á Listahátíð Reykjavíkur síðast liðið vor. Einnig tók Kventettinn þátt í afhendingu myndlistarverðlauna á vegum Carnegie Art Award síðast liðið haust.
Kventett, málmblásarakvintett er skipaður: Karen Sturlaugsson (trompet), Ásdísi Þórðardóttur (trompet), Lilju Valdimarsdóttur (horn), Vilborgu Jónsdóttur (básúna) og Þórhildi Guðmundsdóttur (túba),
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024