Kvennakórinn með afmælistónleika um helgina

Þar mun kórinn fara fyrir einvalaliði söngvara og tónlistarmanna auk þess sem kórfélagar sem hafa dregið sig í hlé munu koma fram með kórnum í tveimur lögum.
Big Bandstemmning verður á afmælistónleikum kórins þar sem Léttssveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur undir en einnig munu þau Dagný Jónsdóttir, sópran, og Bjarni Thor Kristinsson, bassasöngvari, syngja saman dúett og einnig í sitthvoru lagi.
Stjórnendur verða þau Dagný Jónsdóttir, Eiríkur Árni Sigtryggsson og Karen Sturlaugsson, en þess má einnig geta að á tónleikunum verður frumflutt lag sem Eiríkur Árni samdi sérstaklega í tilefni af 40 ára afmæli kvennakórsins.
Kvennakór Keflavíkur á mikla sögu að baki og er raunar elsti starfandi kvennakór á landinu. Upphaf kórsins má rekja til þess að Karlakór Keflavíkur auglýsti eftir áhugasömum konum til að syngja með þeim í sérstöku verkefni en stuttu síðar, eða hinn 22. febrúar árið 1968, komu um 40 konur saman og stofnuðu sinn eigin kór. Stjórnandi kórsins fyrstu 10 árin var Herbert H. Ágústsson, en starfið var afar öflugt á þessum upphafsárum. Þær lögðu upp í ferðalög, bæði innanlands og erlendis auk þess sem þær gáfu meira að segja út plötu með söng sínum.
Þrátt fyrir að kórinn hafi farið í gegnum hæðir og lægðir á sínum fjórum áratugum er starfið í dag enn feykiöflugt. Kórinn telur nú um 30 konur sem æfa tvisvar í viku yfir vetrartímann og hafa staðið í stórræðum undanfarin misseri. M.a. unnu þær til verðlauna á stóru kóramóti á Ítalíu í fyrra.
Víkurfréttir hittu þrjár framákonur í kórnum, þær Helgu Jakobsdóttur, formann, Hildi Harðardóttur og Aðalheiði Gunnarsdóttur og ræddu við þær um afmælistónleikana og hvernig starfið gengur nú fyrir sig.
„Þessir tónleikar verða eiginlega alveg tvískiptir,“ segja þær. „Fyrir hlé verður frekar hefðbundin dagskrá þar sem Bjarni Thor og Dagný syngja bæði einsöng og dúett og svo eru fyrrum kórkonur með okkur í síðustu tveimur lögunum. Eftir hlé verður meiri „Big Band“ stemmning og sveifla þar sem við komum á óvart bæði með söng og framkomu,“ bæta þær við en vilja ekki gefa meira upp um það.
Þær segja einnig að afar gaman hafi verið að fá að æfa með fyrrum meðlimum kórsins enda eru þar á meðal nokkrar konur sem tóku þátt í stofnun hans. „Það er mjög gaman að hitta þær en það er örugglega ekki minna gaman fyrir þær að hittast aftur eftir öll þessi ár.“
Starfið hjá Kvennakór Suðurnesja hefur verið að eflast undanfarin ár en þær stöllur segja að allar Suðurnesjakonur sem hafi áhuga séu velkomnar í hópinn. „Við erum með konur frá öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum nema Garði þannig að við lýsum sérstaklega eftir einhverjum þaðan!“ segja þær í léttum dúr.
Kórinn æfir tvisvar í viku í safnaðarheimilinu í Innri Njarðvík, en fá á næstunni húsnæði á Vallarheiði. Þær þakka bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ fyrir mikinn stuðning. „Þessi nýja aðstaða á eftir að skipta sköpum fyrir okkur og sýnir þann mikla velvilja sem við mætum hjá bænum. Það væri ekki hægt að halda úti öflugu starfi án þess að fá góðan stuðning bæði frá bænum, fyrirtækjum og ekki síst fjölskyldunum okkar.“
Afmælistónleikarnir verða, eins og fyrr segir, á laugardaginn 23. febrúar nk. og hefjast þeir kl. 17. Miðaverð er kr. 2000 og eru allir hvattir til að taka kvöldið frá og njóta skemmtilegrar tónlistardagskrár.
Mynd: Kvennakór Suðurnesja á æfingu fyrir skemmstu.