Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Kvennafjöldi hjá Ásdísi
Ásdís Ragna fór yfir mataræði og fleira tengt heilsu í Nettó. VF-myndir/pket.
Miðvikudagur 30. september 2015 kl. 10:22

Kvennafjöldi hjá Ásdísi

-Viðhorfsbreyting á síðustu árum gagnvart heilsunni.

Það var þétt setinn bekkurinn hjá Ásdísi Rögnu grasalækni sem var með heilsukynningu í verslun Nettó í gærkvöldi. Tugir kvenna mættu á staðinn og hlustuðu á heilsuráð Ásdísar grasalæknis. Hún sagði að veruleg vitundarvakning hefði orðið á síðustu árum og mikilvægt væri fyrir fólk að huga að betra mataræði. Það væri hægt að gera svo margt í gegnum það sem væri gott fyrir heilsuna.

„Það eru ekki til neinar töfralausnir og ekki mæli ég með megrunarkúrum. Þetta er spurning um viðhorf og lífsstíl, drekka meira vatn, borða meira grænmeti og vanmeta ekki hvíldina,“ sagði Ásdís meðal annars í spjalli við VF en hún fer betur yfir málin í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta.
Nettó hefur aukið úrval af heilsuvörum á undanförnum árum og hefur sala á þeim aukist jafnt og þétt.

Heilsukvöldið í Nettó var þáttur í dagskrá Heilsuviku Reykjanesbæjar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024