Kveikt á jólatrjám í kulda og trekki
	Kveikt var á jólatrjám í Sandgerði og Garði í gær, fyrsta sunnudegi í aðventu. Fyrst var kveikt á jólatré Sandgerðinga en síðan stormað í Garðinn og kveikt á trénu þar.
	Skjóða, sem er systir jólasveinanna kom og skemmti á báðum stöðum og þá mættu jólasveinar, sem höfðu leyfi til að fara fyrr til byggða.
	Skólakórar sungu á báðum stöðum og bæjarstjórinn, Magnús Stefánsson, ávarpaði viðstadda. 
	Góð mæting var á báða staði þrátt fyrir kulda og trekk. Því var mætt með því að bjóða upp á heitt kakó og piparkökur.
	Meðfylgjandi myndir voru teknar í sameinaða sveitarfélaginu. Fleiri myndir verða í Víkurfréttum í vikunni.
	VF-myndir: Hilmar Bragi
	
	

	Magnús Stefánsson bæjartsjóri ávarpaði samkomur á báðum stöðum. Hér er hann í Garði og með Skólakór Gerðaskóla.

	Jólatréð í Sandgerði er fallegt og stendur við innkomuna í bæinn við íþróttahúsið og skólann.
	
	

	Skjóða skemmti líka í Garðinum. Fleiri myndir í Víkurfréttum í þessari viku.
				
	
				

 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				