Kveikt á jólatré Sandgerðisbæjar síðdegis
	Ljósin verða kveikt á jólatré Sandgerðisbæjar á afmæli bæjarins, í dag, miðvikudaginn 3. desember kl. 17:00.
	
	Dagskráin hefst með ávarpi bæjarstjóra og að því loknu verða ljósin tendruð. Langleggur og Skjóða koma í heimsókn, einnig er von á óvæntum gestum.
	
	Kakó og piparkökur í boði foreldrafélags grunnskólans, söngur og gleði.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				