HSS
HSS

Mannlíf

Kveður undirdjúpin sáttur
Sunnudagur 10. nóvember 2013 kl. 10:56

Kveður undirdjúpin sáttur

Tómas Knútsson, fyrrum atvinnukafari og forsvarsmaður Bláa hersins, er hættur að kafa. Búningurinn hans er kominn upp á vegg í vinnuaðstöðu hans á Vatnsnesi. Hann heldur sig því þó áfram í nálægð við hafið.

„Ég fékk vírus í höfuðið sem mun ekki fara. Læknirinn minn ráðlagði mér að kafa ekki aftur,“ segir Tómas en bætir við að hann kveðji þó gallann og hafið sáttur. Hann muni áfram einbeita sér að verkefnum Bláa hersins og segir þau ekki vera sér ofviða þrátt fyrir að oft hafi hann verið við það að gefast upp í baráttunni. „Ég er líklega eini maðurinn í 18 ár á Íslandi sem hefur tínt upp rusl og hvatt aðra til þess að hjálpa mér við það. Á sama tíma hefur fólk hent rusli beint fyrir framan nefið á mér.“

Já-in gefa kraft
Tómas vill sjá aukna samfélagsábyrgð þeirra sem hafa áhrif og fjármagn. Þannig verði samfélagið meira meðvitað. Heimurinn í dag kalli á sjálfbærni, endurvinnslu og ábyrgð. Hann segir þá sem hjálpað hafa Bláa hernum hafi notið þess og hugsað um eftir á hversu jákvætt það var. Slíkt efli samábyrgðina. „Eitt já kemur inn á milli og þá fæ ég svo mikinn kraft að ég gleymi nei-unum og djöflast áfram.“ Hann segir að það sem best hafi virkað hingað til sé að taka myndir af drasli í umhverfi einhvers og senda honum, þá fái viðkomandi samviskubit og geri eitthvað í sínum málum.



Fólk á launum við að taka rangar ákvarðanir
Tómas segir handónýtar umhverfisstefnur að urða rusl eða kveikja í því eins og Íslendingar gera mikið ennþá á meðan þjóðir í kringum okkur séu löngu farnar að flokka sitt rusl. „Við getum ekki flaggað Íslandi sem hreinasta landi í heimi á meðan við förum eins illa með það og við gerum. Fullt af fólki þiggur laun fyrir það að taka rangar ákvarðanir í þessum málum.“ Hann segir fólkið vera andlit Íslands og margir reyni að gera Ísland að áhugaverðum og vinsælum ferðamannastað. Öll vistkerfi eigi undir högg að sækja. „Sem betur fer finn ég fyrir ferskum vindum frá áhugafólki um þessi mál og margir leita til mín sem láta þau sig varða. Ég hef tvisvar á þessu ári farið í boði fyrirtækja til að kynna umhverfismál á ráðstefnum erlendis.“ Hann segir að fólk lifir bara í núinu og hugsar ekki hvaða áhrif það hefur á komandi kynslóðir. „Við getum alveg snúið dæminu við,“ segir Tómas vongóður.  

Nota vatnið í þróunaraðstoð
Þá segir Tómas Íslendinga eiga nóg af vatni og sér fyrir sér nýja umhverfissýn. Hann vill að allt sorp verði flokkað og búið til verðmæti og hráefni úr því úr öllu. Hann sér fyrir sér nokkrar öflugar flokkunarstöðvar um allt land sem tækju á móti ruslinu. Til séu samfélög þar sem allt rusl sé endurunnið sem verðmæti. Það sem ekki yrði hægt að nýta innanlands yrði sent með gámum til útlanda og borgað yrði fyrir futninginn með gámum af fersku vatni. „Þannig getum við hreinsað landið og vatnið yrði okkar þróunaraðstoð úti í heimi. Þriðjung jarðarbúa vantar vatn og við eigum nóg af því,“ segir Tómas. Tengslanet yrði með Rauða krossinum og Sameinuðu þjóðunum og neyðarvatnsbanki um allan heim. „Við eigum ekki að þurfa að gefa peninga í þróunaraðstoð þegar við getum gefið vatn.“

Fékk gluggastrending úr Hörpu
Að mati Tómasar þarf að búa komandi kynslóðir undir þá ábyrgð að ákveða hversu lífvænlegt þær vilja hafa Ísland næstu áratugi. Hingað sé til dæmis kominn fiskistofn, makríll, sem sé að raska lífkerfinu í hafinu. „Lífkeðjur fara þangað sem þær lifa af. Hér gæti verið óætur fiskur í sjónum bara eftir nokkra áratugi. Á hverri klukkustund fara 15 þúsund tonn af plastrusli í hafið.“ Tómas er þessar vikurnar að smíða listaverk sem mun endurspegla einmitt þetta vandamál. Til verksins fékk hann gallaðan gluggastrending sem átti að nota við að byggja tónlistarhúsið Hörpu, byggingu sem hann segir að komandi kynslóðir muni greiða næstu 40 árin. Hann sér fyrir sér að fyrirtæki eða stofnanir vilji leigja listaverkið til að hafa það á sínu svæði til vitundarvakningar.

Margir stórir draumar
Tómas er að vasast í ýmsu og á sér stóra drauma. Hann vill til dæmis standa fyrir söfnunarátaki á næsta ári; safna 50 milljónum og afhenda Landsbjörg sem fengi sínar aðildarsveitir til að hreinsa strandlengjuna og fjörurnar í sinni heimabyggð. „Sá sem á ruslið ræður hvað hann gerir við það, gott eða slæmt. Ég vil fá sem flesta í lið með mér til að gera Ísland að bestu ímynd sem til er.“


 

Viðtal: Olga Björt Þórðardóttir // [email protected]

Bílakjarninn
Bílakjarninn