Kúnst að tvinna saman félagslíf og skóla
- segir Margeir Hafsteinsson, formaður nemendamótsnefndar Nemendafélags Verzló.
Það hefur svo sannarlega verið nóg að gera hjá Suðurnesjamanninum Margeiri Hafsteinssyni nemanda í Verzlunarskóla Íslands síðustu mánuði. Hann er formaður nemendamótsnefndar Nemendafélagsins í Versló sem sér um uppsetningu árlegs söngleiks nemenda sem frumsýndur er á Nemendamóti skólans, en sýningar skólans hafa ávallt þótt glæsilegar. Söngleikurinn sem settur er upp í ár heitir Sólstingur og fjallar um útskriftarferð nemenda Verzlunarskólans til Benidorm.
Margeir er á lokaári í skólanum en hann er fæddur í Keflavík og uppalinn í Njarðvík. Margeir stundaði nám við Njarðvíkurskóla öll grunnskólaárin, en undanfarin tvö ár hefur hann búið í Reykjavík til að losna við keyrslu á Reykjanesbrautinni.
Hvernig hefur verið að vinna sem formaður nemendamótsnefndar?
Þetta er búinn að vera frábær tími. Maður hefur kynnst fjöldanum öllum af frábæru fólki sem gaman hefur verið að vinna með. Nefndin samanstendur af 6 krökkum, ásamt mér, og hefur samstarfið verið bæði fróðlegt og spennandi. Þetta er nú samt búið að vera langt og strangt ferli sem loksins er farið að sjá fyrir endann á. Maður hefur öðlast gríðarlega reynslu sem á án efa eftir að nýtast mann í framtíðinni.
Í gegnum tíðina hafa nemendamót Verslunarskólans verið glæsileg - er alltaf keppst við að gera betur en árið áður?
Það hefur nú alltaf kraumað undir að toppa fyrri ár. Ég held samt að nemendamótið sé komið í svolítið fastari skorður og fólk keppist aðallega við að bæta það sem fara hefði mátt betur árið áður. Fyrst og fremst að tryggja það að þeir sem að þessu standa hafi gaman af og á endanum allir hafa skemmt sér vel.
Hvernig er þessi sýning uppbyggð?
Eins og undanfarin ár er söngleikurinn frumsaminn, þ.e. söguþráðurinn og svo fléttast inn í hann lög héðan og þaðan sem þýdd eru á íslensku. Líkt og í fyrra þá sýnum við í Loftkastalanum. Sýningin í ár fjallar um útskriftarferð Verzlinga á Benidorm. Þorsteinn Guðmundsson, úr fóstbræðraþáttunum, skrifaði handritið. Þar fylgjumst við með fjórum krökkum sem eru aðalpersónur sýningarinnar, tveimur fararstjórum ásamt fjölda annarra karaktera sem allir ættu að kannast við sem farið hafa í útskriftarferð. Tónlistarþemað í ár er popp-tónlist í allri þeirri merkingu. Við völdum ca. 15 vinsæl popp-lög í samráði við Jón Ólafsson, tónlistarstjóra. Þar má meðal annars nefna lög með listamönnum á borð við U2, Madonnu og Robbie Williams.
Hefur þetta verið mikil vinna?
Þetta er búið að vera gríðarlega annasamur tími. Við hófumst handa við skipulagningu og hugmyndavinnu strax síðasta vor þegar kosið hafði verið í nefndina. Þetta tekur því í raun alveg heilt ár, frá því við fyrst byrjum og þangað til við sýnum síðustu sýninguna í lok mars, þegar næsta nefnd tekur við.
Hvað taka margir þátt í sýningunni?
Í ár eru u.þ.b. 120 manns sem koma að sýningunni á einhvern hátt. Það eru fjölmargir þættir sem þarf að huga að við uppsetningu á svona verki og hlutverkin eru mörg. Leik-, söng- og dansarar, búningar, förðun, sviðsmenn, PR-fólk, annáll, video-nefnd, ljósmyndarar, grafísk hönnun, vefsíðugerð eru hluti af þeim fjölmörgu hlutverkum sem annaðhvort er prufað eða valið í á einn eða annan hátt.
Hvað er búið að sýna margar sýningar?
Við erum búin að sýna um það bil 15 sýningar í dag. Við áætlum að sýna ca. 5 sýningar í viðbót og klára núna í mars.
Er þetta ekki dýrt?
Það er ekki hægt að neita því að þetta kostar sitt. Við höfum fengið til liðs við okkur frábæra styrktaraðila sem hafa sýnt frábæran samstarfsvilja. Þar á meðal má nefna Icelandair, Ölgerðina, Popp-Tíví, FM-957 og marga fleiri sem stutt hafa við uppsetninguna. Þetta hefur nú yfirleitt alltaf komið vel út hjá okkur og við erum svo sannarlega bjartsýn á það núna.
Hvert hefur þitt hlutverk verið í uppsetningunni?
Mitt hlutverk hefur aðallega snúið að samskiptum við Loftkastalann og fagfólkið okkar. Annars er maður búinn að koma við flest alla þættina í uppsetningunni. Það mætti þó kannski helst nefna búningagerð og förðun sem þá hluti sem ég reyni að láta aðra sjá algerlega um.
Eru það bara nemendur sem taka þátt í sýningunni?
Við fengum til liðs við okkur frábæran hóp sem einstakt hefur verið að vinna með í alla staði. Eins og kom fram áðan þá skrifaði Þorsteinn Guðmundsson handriðið fyrir okkur. Jóhann G. Jóhannsson leikstýrir verkinu af sinni alkunnu snilld. Jón Ólafsson er tónlistarstjóri. Helena Jónsdóttir er danshöfundur í ár ásamt dyggri aðstoð frá Ásdísi Ragnarsdóttur. Sigurður Kaiser sér um frábæra sviðs- og ljósahönnun og Ívar Ragnarsson sér um að hljóðið skili sér örugglega til áhorfenda.
Er hægt að sinna skóla og stjórna svona sýningu á sama tíma?
Það er gríðarleg kúnst að tvinna þessa tvo þætti saman svo út komi góður heildarárangur. Ég neita því ekki, og ég held að enginn geri það sem tekið hefur þátt í jafn öflugu félagslífi og er í Versló, að þetta komi niður á náminu á einhvern hátt. Maður setur bara allt á fullt í skólanum þegar mesta álagið er gengið yfir og vonar það besta.
Hvenær klárarðu skólann?
Ég klára stúdentsprófin núna í vor.
Hvað tekur þá við?
Þetta er góð spurning. Fyrst tekur við útskriftarferð til Krítar sem maður er búinn að vera að bíða eftir lengi. Annars eru önnur framtíðarplön óráðin. Margt kemur til greina en ekkert ákveðið ennþá.
VF-ljósmyndir: Páll Bergmann.