Krump-lakkstígvél og veski í stíl
Rúna Kærnested Óladóttir var á því að vera bara titluð sem „amma gull“. Hún hefur aldrei getað hugsað sér að halda jólin erlendis og vill frekar vera í faðmi sinna nánustu. Hún notar einnig tækifærið til að senda öllum óskir um gleðilega hátíð.
Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið?
Það er óneitanlega The Holiday með Cameron Diaz og Kate Winslet.
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir?
Verð að viðurkenna að Facebook hefur algjörlega tekið yfir, eins og ég sendi alltaf mörg kort.
Ertu vanaföst um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?
Já ég myndi segja að ég væri frekar vanaföst í sambandi við jólin, það er nánast allt sem ég geri jól eftir jól.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Eftirminnilegasta gjöfin, þegar stórt er spurt. Ég held að ég fari bara aftur til 8 ára aldurs þegar ég plataði ömmu til að gefa mér hvítu „krump-lakkstígvélin“ sem ég sá ekki sólina fyrir og hvítt veski í stíl.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum?
Eiginlega ekkert sérstakt þannig, jólin voru bara alltaf yndisleg hjá mömmu og pabba með systkinum mínum, svo var alltaf farið eftir pakkaopnun til afa og ömmu í stóra appelsínugula rjúpupottinn í eldhúsinu hjá ömmu þegar líða fór á kvöldið. Ógleymanlegt.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Alltaf rjúpur og líka hamborgarhryggur fyrir Sunnu Dís því henni finnst rjúpurnar ekkert spes.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Jólin eru komin þegar rjúpu og rauðkálslyktin fer að ilma um húsið á aðfangadag, ekki spurning.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin?
Ég hef aldrei getað hugsað mér að vera erlendis um jólin, hef alltaf viljað vera í faðmi minna nánustu, en hver veit ævina fyrr en öll er.
Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn?
Ég varð ótrúlega sár, man það.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Jólatréð er eiginlega uppáhalds
Hvernig verð þú jóladegi?
Ég sef út, borða afganga, skoða gjafirnar og svo lesum við jólakortin. Steini bróðir minn á afmæli á jóladag svo það er alltaf tvöfaldur hátíðardagur. Mamma og pabbi bjóða okkur systkinunum, mökum, börnum og nú barnabörnum í mat á jóladagskvöld sem er ómetanleg samverustund.