Kríuvarp í góðum málum - fer oft langa leið eftir fæðu
Kríuvarp virðist hafa heppnast ágætlega, alla vega miðað við fjölda fugla við Norðurkot í Sandgerði. Þar er eitt stærsta kríuvarp landsins. Vandræðagangur hefur verið með ungana á undanförnum árum vegna ætisleysis en nú virðist sem meira æti sé í sjónum við ströndina á Suðurnesjum.
Þegar fréttamaður VF var á ferð í Sandgerði, úti í Garði og við Leiru vakti það athygli að krían var að sækja síli í sjóinn á þessum stöðum, ekki út frá Stafnesi eða í grennd við Norðurkot. Þúsundir fugla flugu í norðurátt frá Norðurkotslandinu, yfir Sandgerðisveg og Garðveg í ætisleit. Og svo til baka með matinn til unganna sem margir eru reyndar komnir á flug en ekki allir. Sumir voru að vandræðast á veginum eins og sjá má á myndinni. VF-myndir/pket.