Kristinn Pálmson sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar
Laugardaginn 25. október n.k. kl. 16:00 opnar Kristinn Pálmason einkasýningu í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin samanstendur m.a. af „Kraftaverkaverkamálverkaseríunni“ frá 1998 en hún kemur nú í fyrsta sinn fyrir augu almennings hér á landi. Kristinn hefur einnig unnið höggmynda- og hljóðinnsetningarnar „Hellirinn“ og „Kraftaverkahljóðverkið“ sérstaklega fyrir þessa sýningu. Kristinn útskrifaðist frá MHÍ 1994 og frá The Slade School of Fine Art í London 1998. Hann á að baki 9 einkasýningar og fjölda samsýninga auk þátttöku í ýmsum samvinnuverkefnum, nú síðast í Hafnarborg ásamt Baldri J. Baldurssyni og Gulleik Lövskar. Þetta er önnur einkasýning Kristins á þessu ári en í september s.l. sýndi hann all sérstæða málverkainnsetningu í Gallerí Skugga. Kristinn hlaut lofsamlega dóma fyrir verk sín á þessum sýningum.
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er staðsettur í Duushúsum, Duusgötu 2 í Reykjanesbæ og er opinn alla daga frá 13.00 - 17.00. Sýningin stendur til 7. desember.