Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Kristín býður í listaspjall
    Kristín við verk sín í Duushúsum.
  • Kristín býður í listaspjall
Föstudagur 10. október 2014 kl. 12:28

Kristín býður í listaspjall

- í Duushúsum.

Listakonan Kristín Rúnarsdóttir tekur á móti gestum í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum næstkomandi sunnudag, 12. október, kl. 15:00, og leiðir þá um sýningu sína LEIKFLÉTTUR.

Kristín fæddist í Keflavík árið 1984 og stundaði nám við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hélt síðan til framhaldsnáms í Kunst- og Designhøgskolen i Bergen, Noregi. Kristín hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og í Noregi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í innsetningu sinni í Listasafni Reykjanesbæjar vinnur Kristín með ýmis efni, svo sem límbönd sem hún notar til að teikna með á gólfið, pappír, málningu, við og lakk. Margt í verkum hennar minnir á íþróttaleikvanga og leiki. Í texta Markúsar Þórs Andréssonar í sýningarskrá segir: ,,Manni koma til hugar leikir og vill helst taka þátt, eru þetta ekki stærðar Mikado pinnar innan um lokkandi klifurgrindur?”

Að auki skrifar Markús um vinnuaðferðir Kristínar og segir:
,,Á vinnustofunni er listakonan lúsiðin; skissar, gerir uppkast og módel, þaulvinnur verk sín með reglustikum og skurðarhnífum. Óteljandi skipulögð handtök sem gefa til kynna að hún viti nákvæmlega hvað hún hefur fyrir stafni. En óvissa ríkir allt fram á ögurstund og þar liggur spenna og eftirvænting sem áhorfendur skynja og auka á ánægjuna við sýningarupplifunina.”

Sýningin stendur til 26. október.
 Safnið er opið virka daga kl. 12:00-17:00 og um helgar kl. 13:00-17:00.
Allir eru velkomnir, aðgangur er ókeypis og heitt verður á könnunni.