Krían komin á Garðskaga
Krían er komin á Garðskaga og hefur einnig sést við Ásgarð þar sem er mikið varpland hjá kríunni. Fyrstu kríurnar eru yfirleitt á Suðurnesjum á þessum tíma, þ.e. í kringum 10. maí ár hvert.
Kristbjörg Kamilla Sigtryggsdóttir er áhugaljósmyndari í Garðinum og tók meðfylgjandi mynd af kríunni sem lét sjá sig við Ásgarð núna áðan. Kríunum mun svo fjölga hratt næstu daga en stórir hópar af kríunni hafa sést í nágrenni Hornafjarðar en þar koma þessir farfuglar til landsins eftir langflug úr suðurhöfum sem tekur um og yfir einn mánuð.