HSS
HSS

Mannlíf

Krían er góður vorboði
Þriðjudagur 10. maí 2011 kl. 14:30

Krían er góður vorboði

- ný myndlistarsýning á Listatorgi.

Hin frábæra listakona, Sigríður Guðný Sverrrisdóttir, heiðrar sýningarsal Listatorgs í Sandgerði næst en hún málar einstaklega fallegar myndir, þar sem krían er aðal viðfangsefnið.

Sigríður Guðný lærði grafíska hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, útskrifaðist þaðan árið 1983 og fór seinna í framhaldsnám til Flórens á Ítalíu. Hún öðlaðist kennararéttindi frá Listaháskóla Íslands árið 2004.
Sigríður Guðný hefur haldið all margar sýningar í gegnum árin og eru það vafalaust margir sem kannast við fallegu verkin hennar.

Nú voru félagar Listatorgs svo heppnir að fá að sýna verk Sigríðar í sýningarsalnum Sandgerði en sýningin opnar laugardaginn 14.maí klukkan 14:00 og stendur til mánaðamóta. Myndir Sigríðar heilla alla sem sjá þær, enda einkar fær fagmanneskja þarna á ferð.

Listatorg er opið alla daga vikunnar frá klukkan 13:00 til 17:00. Allir hjartanlega velkomnir!

Bílakjarninn
Bílakjarninn