Kostir og gallar ESB
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum stendur fyrir fundarröð tímabilið 13. september til 11. október fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu og samningaferlið sem nú er í gangi vegna aðildarumsóknar Íslands.
Aðalsamningamaður Íslands og fulltrúar úr samningahópum munu skýra frá ferlinu og kynna helstu málaflokka í viðræðum Íslands og ESB.
13. september kl. 18.00 til 19.30 ?Almennt um samningaferlið og verkefnin framundan. - Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í viðræðum Íslands og ESB.
20. september kl. 18:00 til 19:30 ?Sjávarútvegsmál - Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs utanríkisráðuneytisins og fulltrúi í aðalsamninganefnd.
27. september kl. 18:00 til 19:30? Landbúnaðarmál - ?Harald Aspelund, varaformaður samningahóps um landbúnaðarmál.
4. október kl. 18:00 til 19:30? Byggða-og sveitarstjórnarmál? - Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, formaður samningahóps um byggða-og sveitarstjórnarmál ???
11. október kl. 18:00 til 19:30 ?Gjaldmiðilsmál - ?Ólafur Sigurðsson, fulltrúi í samningahópi um gjaldmiðilsmál.
Fundirnir eru ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku þína á þann eða þá fundi sem þú hefur áhuga á hjá MSS í síma 421-7500 eða á [email protected]
VF-Mynd: Fyrrum útskriftarnemar MSS