Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Kóngareið um kirkjur á Suðurnesjum
  • Kóngareið um kirkjur á Suðurnesjum
Mánudagur 12. júní 2017 kl. 06:00

Kóngareið um kirkjur á Suðurnesjum

- safnað í orgelsjóð Keflavíkurkirkju

Karlakvartettinn Kóngar mun hjóla í allar kirkjur á Suðurnesjum þann 1. júlí n.k. og taka lagið en markmiðið er að safna áheitum í orgelsjóð Keflavíkurkirkju. Kvartettinn skipa þeir Arnór B. Vilbergsson kantor Keflavíkurkirkju og stjórnandi, Elmar Þór Hauksson, Sveinn Sveinsson, Sólmundur Friðriksson og Kristján Jóhannsson, þó ekki óperusöngvarinn að norðan.

Að sögn Arnórs hafa Kóngar ávallt verið stórhuga. „Meiningin var upphaflega að hjóla hringinn í kringum landið með viðkomu í völdum kirkjum og syngja nokkur lög,“ segir Arnór. „Svo fóru menn að velta fyrir sér tímanum sem færi í þetta og Sveinn 2. bassi átti bara ekki nægilega mikið frí inni. Þá kom upp þessi hugmynd að hjóla í kirkjurnar á Reykjanesskaganum sem tilheyra Kjalarnesprófastsdæmi. Kristján og Elmar töldu það þó vænlegri kost að taka 1-2 hringi í kringum skrúðgarðinn í Keflavík en það hlaut ekki nægjanlegar undirtektir,“ segir Arnór og hlær.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kóngar munu hjóla á milli kirkna á einum degi og eru allir velkomnir að taka þátt og hjóla með. Þeir munu syngja í hverri kirkju nokkur lög og sálma og verður bíll á staðnum sem getur hvílt hjólreiðamenn á leiðinni ef þörf krefur en leiðin er samtals 113 km. Arnór hvetur sem flesta bæjarbúa til þess að heita á kónga en allur ágóði fer í orgelsjóð Keflavíkurkirkju. Þeir sem vilja styðja kóngareiðina get lagt inn á reiknng 0121-15-350005, Kt 680169-5789.