Bygg
Bygg

Mannlíf

Kommisarý opnar aftur á vellinum
Sunnudagur 7. desember 2014 kl. 11:00

Kommisarý opnar aftur á vellinum

- Suðurnesjahönnun blómstrar.

Hönnunarverslunin Kommisarý opnaði í Eldey frumkvöðlasetri á opnu kvöldi í setrinu sl. fimmtudagskvöld en þar verður hægt að nálgast áhugaverða hönnun af Suðurnesjum m.a. verk hönnuða sem taka þátt í Maris – hönnunarklasa Suðurnesja og að sjálfsögðu hönnun sem framleidd er í Eldey en þar starfa nú sex hönnuðir.

 Nafnið er tilvísun í Kommisarý verslun hersins á Keflavíkurflugvelli og þar er m.a. notast við gömul húsgögn frá hernum. Það er gaman að sjá vöxtinn í hönnun í frumkvöðlasetrinu en það hýsti áður Public Works eða verkfræðiskrifstofur hersins. Þar sem áður voru pípulagningarverkstæði, málningaverkstæði og blikksmiðjur eru nú saumavélar og skapandi fólk.
 
 

Sara Dögg Gylfadóttir mun sjá um reksturinn og er gert ráð fyrir því að búðin verði opin þegar viðburðir eru í húsinu, fyrir hópa og á völdum dögum. Þess má geta að til jóla verður Kommisarý opin á fimmtudögum frá kl. 15-17.
 
Hver er hugmyndin á bak við búðina?
Hugmyndin er að hafa litla hönnunarbúð þar sem hægt er að kaupa fallega hönnun, fatnað, skart og fylgihluti fyrir heimilið, sem hefur uppruna sinn til Suðurnesja. Allir hönnuðirnir í búðinni eiga rætur að rekja til Suðurnesja eða búa hér á svæðinu.
 

Hverjir geta selt þar og hvernig er fyrirkomulagið?
Allar vörur eru í umboðssölu og eru valdar inn í búðina með tilliti til fjölbreytni og gæða. Við viljum endilega auka úrvalið og hvetum hönnuði að hafa samband ef þeir eru með vöru sem gæti hentað Kommisarý. Hægt er að hafa samband á [email protected] eða í síma 699 2604.  

 
 
Hvaða hönnuðir taka þátt núna?
Við erum með vörur til sölu eftir Höllu Ben, Mýr design, Rúnar frá Keflavík, Kalla í Gull og Hönnun, Gunnhildi Þórðardóttur, Brynhildi í Luka, Steinunni í Leðurvörum, MeMe, Para Pögg, Arnbjörgu í Heklæði og Elísabetu Ásberg og það eru alltaf að bætast hönnuðir í hópinn.  

 
Hvaðan kemur þinn áhugi á hönnun?
Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á hönnun og þá sérstaklega innanhúshönnun. Ég hef sjálf hannað fylgihluti fyrir heimilið, húsgögn sem og hannað og sett upp sýningar. Mér finnst þetta mjög áhugavert verkefni og skemmtilegt að vinna með hönnuðum. Það eru virkilega margir hæfileikaríkir hönnuðir af Suðurnesjum og Frumkvöðlasetrið Eldey hefur átt stóran þátt í að kynda undir hönnun og hönnuði á Suðurnesjum. Gott dæmi um það er Maris hönnunarklasinn en svo má líka nefna Heklugos og fleiri viðburði tengdum hönnun sem haldnir hafa verið í setrinu. Þess vegna á Kommisarý svo vel heima í Eldey.
 
 
Hver er framtíðarpælingin?
Vonandi á Kommisarý eftir að bæta við sig fleiri hönnuðum og auka úrvalið. Svo hafa einnig komið upp hugmyndir um vefverslun og þá að kynna hönnun af Suðurnesjum erlendis. Við erum á Facebook og ætlum að vera dugleg að setja inn myndir af úrvalinu og kynna hönnuði. 

Kommisarý verður fyrst um sinn opin á fimmtudögum frá kl. 15-17.  Grænásbraut 506, 235 Ásbrú, Reykjanesbæ.
Bílakjarninn
Bílakjarninn