Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Kolbrún Róberts sýnir í Energia
Föstudagur 11. nóvember 2005 kl. 09:44

Kolbrún Róberts sýnir í Energia

Myndlistakonan Kolbrún Róbertsdóttir opnaði nýlega sýningu á verkum sínum í Bistro barnum Energia í Smáralind.

Sýningin, sem kallast „Allt fram streymir", samanstendur af stórum og veglegum verkum þar sem hún notast við múrgrunn og olíuliti. Verkin eru þrettán talsins þar sem fossar eru eru áberandi og vísar yfirskrift sýningarinnar í þá. Í þeim myndum notast Kolbrún við græna liti í bland við þægilega og róandi jarðliti, en í öðrum myndum á sýningunni notast hún við heitari liti og með því leitast hún við að skapa hlýja strauma sem vísa aftur í yfirskriftina.

„Ég undirbjó þessa sýningu með jólin í huga því að í jólaösinni sem er að byrja er gott fyrir fólk að setjast inn í rólega stemmningu og fá sér kaffisopa. Viðtökur gesta hafa hingað til verið mjög góðar og mér finnst ég fá til baka frá þeim sem ég lagði í sýninguna."

Kolbrún bætir því við að hún hafi hugsað verkin út frá því umhverfi sem húsnæðið býður upp á. „Ég er einmitt farin að gera mikið af því að vinna verkin út frá því hvar þau verða staðsett. Ég hef undanfarið tekið að mér að mála fyrir fólk og tek þá mið af því hvernig rýmið er."
Sýningin stendur út nóvembermánuð.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024