Klaas Kloosterboer í SSV
Næstkomandi laugardag 16 maí kl.16:00 opnar Suðsuðvestur í samvinnu við Galerie van Gelder (Amsterdam) einkasýningu á verkum hollenska
listamannsins Klaas Kloosterboer. Sýningin tilheyrir Listahátíð í Reykjavík 2009 og ber yfirskriftina „Pulp Machineries”.
Klaas Kloosterboer er vel þekktur í Hollandi fyrir verk sín sem oft taka á sig þrívíð form. Klaas notar hefðbundin efni svo sem málningu og striga í listsköpun sinni en hlutgerir efniviðinn með því að rífa í sundur og endurbyggja málverks-skúlptúra.
Í huga Klaas er listsköpun ávalt spurning um að leggja undir sig rými.
Margbreytilegar tækniaðferðir, til að mynda notkun spreybrúsa og sletta, ásamt því að klippa og rimpa, kasta og skella eru algengar í vinnslu hans
við gerð striga og málverks-skúlptúra sinna, sem stundum eru unnir í tengslum við vídeóverk. Með þessum kraftmiklu athöfnum umbreytast verkin,
hlutgerast og verða þrívíð málverk sem oft líkja eftir klæðnaði og skilgreina á myndrænan hátt hugrenningartengslin að umvefja og hylja.
Umfangsmikil einkasýning var haldin á verkum Klaas Kloosterboer í Badischer Kunstverein, í Karlsruhe, Þýskalandi árið 2003. Hann hefur tekið
þátt í mörgum virtum samsýningum.
Fjölmörg verka hans eru í eigu opnberra safna sem og einkasafna víða um heim.
Sýningin stendur til 14 júní. Ókeypis aðgangur og allir eru velkomnir.
Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Keflavík, þar er opið um helgar frá kl.14-kl.17 og eftir samkomulagi.