KK og Maggi í Duushúsum í kvöld
KK og Maggi Eiríks hafa löngum verið auðfúsugestir á Suðurnesjum og verður eflaust vel tekið á móti þeim í Duushúsum í kvöld, fimmtudagskvölið 16. júlí.
KK og Maggi hafa sent frá sér þrjár plötur með „ferðalögunum“ svokölluðu og hafa þær notið fádæma vinsælda, selst í meira en 30.000 eintökum. Nú er búið að setja diskana þrjá í einn pakka og jafnframt gefa út söngvabók með öllum textum ásamt gítargripum. Verður hvorutveggja fáanlegt á tónleikunum.
Tónleikar KK og Magga hafa löngum þótt sérstök upplifun. Skotið er litlum sögum inn á milli laga sem oft vekja kátínu og gleði og skapa þetta sérstaka afslappaða andrúmsloft sem ávallt ríkir milli listamanna og áheyrenda á tónleikum KK og Magga. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er miðasalan við innganginn.