Bygg
Bygg

Mannlíf

KK & Maggi Eiríks leika í Duushúsum
Mánudagur 16. júlí 2007 kl. 15:17

KK & Maggi Eiríks leika í Duushúsum

Nýi diskur KK og Magga Eiríks „Langferðalög“ er söluhæsti diskur landsins um þessar mundir. Af því tilefni munu KK og Maggi leggja í „ferðalög“ á næstunni. Þeir munu koma í Duushús föstudaginn 20. júlí og halda tónleika. Á dagskránni verða mörg af þekktustu sönglögum þjóðarinnar í alþýðlegum útsetningum félaganna í bland við það besta úr fórum þeirra sjálfra.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og lýkur um klukkan 22:00. Það verður enginn söngelsk sála svikin af ljúfri kvöldstund í félagsskap þessara ástsælu listamanna. Miðasala við innganginn.

Fréttatilkynning

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn