Bygg
Bygg

Mannlíf

Kjólar og knattspyrna eru áhugamál Thelmu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 1. maí 2020 kl. 12:48

Kjólar og knattspyrna eru áhugamál Thelmu

Thelma Jónsdóttir klæðist bara eldri kjólum og fer í þeim á knattspyrnuleiki sonanna. Afi þeirra var í gullaldarliði Keflavíkur.

Thelma Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar og konan á bakvið Kjólasafn Thelmu á samfélagsmiðlum, á tvö áhugamál, knattspyrnu og kjóla. Við getum bætt þriðja K-inu við því hún er brottflutt Keflavíkurmær. Knattspyrnuáhuginn kemur kannski að hluta frá föður hennar, Jóni Ólafi Jónssyni, sem var einn af lykilmönnum gullaldarliðs Keflavíkur í knattspyrnu.

– Líturðu björtum augum til sumarsins?

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Já, enda bjartsýn að eðlisfari og viss um að þetta sumar verði jafn gott veðurfarslega eins og það síðasta. 

– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau?

Kjólar og knattspyrna eru mín helstu áhugamál. Ég safna og geng daglega í gömlum litríkum kjólum, helst frá árunum 1955–1975. Ástandið hefur haft lítil áhrif á það en ég hef þó verið að hvetja konur að vera duglegar að fara í fallega kjóla þó maður sé bara heima hjá sér og endilega skella á sig varalit, það gerir ótrúlega mikið fyrir sálartetrið.

Hitt áhugamálið, knattspyrnan, hefur hins vegar aldeilis orðið fyrir ástandinu eins og allir vita. Ég fer mjög gjarnan að horfa á synina keppa og sakna þess mjög að standa á hliðarlínunni, ekki bara að horfa á leiki heldur einnig hitta foreldra og aðra fótboltaáhugamenn. Held þó í vonina að við fáum að mæta á leiki í sumar. 

– Hvernig byrjaði þetta kjóladæmi og hvernig þróaðist það?

Strax á unglingsaldri fannst mér gaman að fara óhefðbundnar leiðir í klæðavali, fór í náttbuxum af pabba á ball og vafði dúk um hausinn á mér. Þegar ég fór sem skiptinemi til Þýskalands sem unglingur kynntist ég síðan flóamörkuðum og byrjaði þá að kaupa notuð og litrík föt. Stíllinn þróaðist síðan með árunum en undanfarin fimmtán ár hef ég nær eingöngu gengið í gömlum kjólum og á orðið ansi stórt og fallegt safn. Þegar aðrir fara á söfn í útlöndum þá fer ég í gersemaleit í vintage-búðum.   

– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan?

Nei, engan sérstakan. Ferðalög okkar innanlands undanfarin tólf ár hafa aðallega tengst fótboltamótum.

– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?

Nokkuð óráðið enda erfitt að gera langtímaplön þessa dagana. Held að við eigum bara eftir að njóta þess að vera hérna heima í fallega Hafnarfirðinum en ef það verður einhver pása í fótboltanum hjá strákunum þá förum við mjög líklega í heimsókn á Snæfellsnesið eða alla leið á Langanesið. Síðan verður yngri drengurinn loks fermdur í lok ágúst.

– Hver voru plönin áður en veiran setti strik í reikninginn?

Við vorum á leiðinni til Gautaborgar á risastórt, alþjóðlegt fótboltamót með yngri syninum og í framhaldinu til Kaupmannahafnar til að eiga gæðastundir með systkinum mannsins míns.

– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst?

Það sem hefur breyst mest er að ég byrjaði í nýrri og spennandi vinnu þann 1. apríl síðastliðinn sem er vissulega smá skrýtið á þessum undarlegu tímum. Annars höfum við fjölskyldan bara verið mest heima, spilað, púslað, horft á margar sjónvarpsseríur en einnig saknað þess að hitta fólk.

– Hvernig leggst nýja starfið í þig?

Það leggst mjög vel í mig, hlakka til að taka þátt í að efla atvinnulíf í Hafnarfirði og hvet Suðurnesjamenn til að kíkja við í fallega fjörðinn. Það eru annars ýmsar áherslubreytingar í starfsemi markaðsstofunnar sem verður gaman að takast á við og móta í samstarfi við stjórn félagsins. Mig hafði annars dreymt um það lengi að geta gengið í vinnuna, sá draumur hefur nú ræst og eru það mikil lífsgæði. 

– Finnst þér fólk almennt virða reglur tengdar samkomubanni?

Já, mér finnst allir vera að reyna að  vanda sig og fara eftir reglum.

– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

Held að við verðum þakklátari fyrir margt sem okkur þótti áður svo sjálfsagt, eins og að eiga gæðastundir með vinum og ættingjum og gefa gott og innilegt faðmlag.

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

Það eru bara helst símtöl og Messenger en nota myndsímtöl mun meira en áður og hef farið í nokkur fjarpartý.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

Það yrði til mömmu og pabba. Ég hef einungis getað heimsótt þau á pallinn undanfarnar vikur svo við reynum að heyrast oftar í síma.

– Ertu liðtæk í eldhúsinu?

Nei, eiginlega ekki ... eða eiginmaðurinn er allavega mun betri kokkur en ég.

– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

Helst eitthvað sem hægt er að gera í einum potti t.d. kjúklingasúpu en svo er líka skemmtilegt að bera fram litríkan og fallegan mat.

– Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Innbökuð nautalund – jólamaturinn okkar.

– Hvað geturðu ekki hugsað þér að borða?

Súrmat, læt pabba um það.

–Hvað var bakað síðast á þínu heimili?

Bökuðum mjög góðar brauðbollur nýverið og dreifðum hluta þeirra á góð heimili.

Ef þú fengir 2000 krónur, hvað myndir þú kaupa í matinn?

Hakk og spaghetti, allir sáttir við það á mínu heimili.