Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Ketilstígur á sunnudaginn
Þriðjudagur 3. maí 2011 kl. 08:24

Ketilstígur á sunnudaginn


AF STAÐ á Reykjanesið - Ketilstígur 2. ferð, sunnudaginn 8. maí 2011. Mæting kl. 13:00 við Seltún í Krýsuvík.


Upphafsstaður: Akið Krýsuvíkurveg að skilti sem á stendur Seltún, hverasvæði í Krýsuvík rétt við suðurenda Kleifarvatns þar sem þjónustuhúsin eru.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Ketilstígur er hluti af þjóðleið milli Krýsuvíkur og Hafnarfjarðar. Á leiðinni verður gengið framhjá Arnarvatni, um Sveifluháls að katlinum sem leiðin dregur nafn sitt af. Genginn hringur til baka með útsýni yfir Móhálsadal og Núpshlíðarháls. Svæðið býr yfir kyngimagnaðri náttúru, minjum og sögum sem Sigrún Jónsd. Franklín mun miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki ca. 3 - 4 klst. með fræðslustoppum, um 7 km. Frekar auðveld leið, dálítið upp í mót í byrjun. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Þátttökugjald kr. 1.000. Frítt fyrir börn. Tilvalið er að taka með sér myndavél því litadýrðin og útsýnið er stórkostlegt.


Gangan er önnur ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með leiðsögn á sunnudögum í maí. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá vinninga. Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir velkomnir.


Nánari upplýsingar um ferðir:
Sigrún Jónsd. Franklín
www.sjfmenningarmidlun.is
[email protected] / GSM: 691 8828