Kerfisrækt í SSV
Kerfisrækt - Ingirafn Steinarsson.
Mosi sem vex með hjálp tilbúins vatnsræktarkerfis er táknrænt verk
Ingarafns Steinarssonar um þau kerfi sem maðurinn hefur komið sér upp
fyrir hönd náttúrunnar. Þau okkar sem eru fórnarlömb þeirrar fegurðar, sem
liggur í þessum kerfum, könnumst við hina óleysanlegu mótsögn sem felst í
því að vera haldin þráhyggju yfir fagurfræði vísindanna meðan við fögnum
glórulausu eðli tækninnar. Í raun er þetta ákaflega klókt kerfi sem
hampar eigin framþróun og klæmist á notagildi sínu.
Ráðgáta framþróunarinnar liggur í dulspekilegri trú okkar á að allir
hlutir þróist til að verða betri, línulegri og hagkvæmari, í þeim tilgangi
að ná lengra en við erum stödd núna. Við vitum vel að tæknin veitir okkur
í raun ekki þetta, en samt kunnum við vel við það því möguleikarnir eru
svo máttugir. Notagildi tækninnar er orðið að fjarvistarsönnun fyrir eigin
framförum, líkt og skrúfa myndi láta sig dreyma um æxlun blóma, á meðan
blómið lætur sig dreyma um helbert notagildi skrúfunnar.
En eigi að síður er mosi einfaldara lífsform en aðrar plöntur og hamlar
þessi einfaldleiki þróun hans sem tegundar. Þar af leiðandi er mosinn ein
fjölbreyttust plöntutegunda, hann er lífvera af þeim meiði sem getur fært
menninguna aftur nær nattúrunni, með því að nema land á nýrunnu hrauni á
sama áhrifaríka hátt og hann leggur undir sig steinsteypu yfirgefins húss.
Menning er, þegar öllu er á botnin hvolft, einungis annað heitir yfir
bakteríu – lífvera sem í raun er skaðræðisvaldur í hreinlætisstuðli
samfélagsins. En eins og Darwin bendir á er enginn tilgangur með þróun;
hún er einungis kerfi breytinga sem öllum stundum getur af sér furðulega
hluti í þeim tilgangi einum að koma á jafnvægi til móts við það sem
náttúruna losar sig við. Þannig er eini tilgangur þróunar sá að skjóta sér
undan, þó ekki væri nema tímabundið, hinni endanlegu hnignun alls lífs.
Hydroponics, eða vatnsræktarkerfi, er hins vegar byggt á tækni sem heldur
jarðvegi frá vexti plantna. Það byggir á þaulhugsaðri og framtíðarlegri
notkun fljótandi áburðar, sem minnir á undarlegan hátt á Dr. Strangelove,
sem beindi getuleysi sínu að karnorkusprengjunni og hinu mikla samsæri
kommúnismans í þeim tilgangi að hvítþvo sína dýrmætu líkamsvessa, sem hann
neitaði bæði kommúnismanum og konum um.
Eftir stendur spurningin um hvaða skilning við leggjum í þessa hluti.
Sveppafræði er róttækasta dæmið um hvernig teikning getur verið eina
leiðin til að henda reiður á muninn milli tegunda. Að lýsa litrófi með
orðum er í raun ógjörningur, þar sem vatnslitir geta falið í sér lífræna
eiginleika lita og upplitunar með jafnvel meiri nákvæmni en ljósmynd.
Þannig er teikningin leið til að skilja til fulls hlutverk kerfisins, hún
deilir sama iðandi hjarta og vísindin í viðleitni sinni til að skilja
heiminn.
Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar