Bygg
Bygg

Mannlíf

Kennsl í SSV
Mánudagur 21. júlí 2008 kl. 16:02

Kennsl í SSV

Laugardaginn 26.júlí kl.16 opnar Björk Guðnadóttir sýninguna "Kennsl" í sýningarrýminu Suðsuðvestur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í skáldskaparfræði Aristótelesar eru kennsl (forngríska: ?ναγν?ρισις, anagnorisis) það þegar ein persóna harmleiks þekkist skyndilega eða uppgötvar uppruna sinn eða sitt sanna sjálf, oft með geigvænlegum afleiðingum.

Sýningin samanstendur af léreftsskúlptúr, tréristu og kartonþrykki
sett saman í innsetningu sem snertir fleti tilvistar, samskipta og
innra lífi.

Björk Guðnadóttir nam klæðskurð í París árin 1991-1994 og myndlist í Listaakademíunni í Oslo. Hún lauk Mastersnámi í Myndlist frá Umea Listaháskólanum í Svíþjóð árið 2000.

Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ. Opnunartími er laugardaga og sunnudag frá kl.13 – kl.17 og eftir samkomulagi. Sýningin mun standa til 24 ágúst.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar má finna á www.sudsudvestur.is