Mannlíf

Kennir foreldrum að láta drauma rætast
Frá fyrirlestri fyrir foreldra á vegum FFGÍR.
Föstudagur 7. febrúar 2014 kl. 09:06

Kennir foreldrum að láta drauma rætast

- Þorgrímur Þráinsson með fyrirlestur 11. febrúar nk.

Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson heldur á nk. þriðjudag, 11. febrúar, fyrirlesturinn „Láttu drauminn rætast“ fyrir foreldra nemenda í 8.-10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar. Fyrirlesturinn verður í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefst klukkan 20:00 og er á vegum FFGÍR (Foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ).

Þorgrímur hittir einnig nemendur í 10. bekk dagana 7.-14. febrúar í sínum heimaskólum. Honum hefur verið tekið fagnandi af nemendum og gefur foreldrum nú tækifæri til að heyra hvað hann hefur fram að færa.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

„Fyrirlesturinn er fyrst og fremst hvatning til nemenda um að bera ábyrgð á eigin lífi og hafa hugrekki til að fylgja hjartanu. Ég segi sögur því til stuðnings,“ segir Þorgrímur. Foreldrar eru hvattir til að taka vel á móti Þorgrími og fylla salinn. Lofað er ánægjulegri kvöldstund.

Bílakjarninn
Bílakjarninn